Sunday, May 17, 2009
Friday, May 15, 2009
Hér vantar mús
Wednesday, May 13, 2009
Populus Trichocarpa

Í tilefni af því að ég var að koma Populus Trichocarpa síðunni minni í sitt rétta horf, er hér nýleg mynd af öspunum góðu, þolinmóðustu ljósmyndafyrirsætum sem nokkur áhugaljósmyndari getur óskað sér.
Hér eru aspirnar í garði nágrannans.
Hollensk hryðjuverk
Tuesday, May 12, 2009
Kristján & Pétur
Monday, May 11, 2009
Wednesday, May 06, 2009
Hekla Karen á Hauksstöðum
Hekla fór með okkur í fjárhúsin, sýndi okkur nýborin lömb
og hana Flekku, sem er uppáhaldsærin hennar.
Það var lesið og leikið.
Að lokum tók Hekla Karen mynd af ömmu og afa í veiðihúsinu í Vesturársdal.
Monday, April 27, 2009
Viðhengi
Thursday, April 23, 2009
Sumarköttur
Wednesday, April 22, 2009
Skemmdarverk í Kjarnaskógi
Seinna á göngunni þegar við blöstu þessar allt að því huggulegu raflínur með gamla laginu, varð mér hugsað til fyrirhugaðra skemmdarverka á svæðinu með gífurlegri stálmastra-svokallaðri -byggðalínu ( les raforkuflutningslínu fyrir álver ).Skemmdarverk á klósetti, þó fyrirlitleg séu, eru hjóm eitt miðað við þau náttúruspjöll, sem sumir afglapar eru tilbúnir framkvæma svo einhverjir í útlöndum meiki mikinn monning.
Naturen det billige skidt.

Tuesday, April 21, 2009
Af hröfnum
Monday, April 20, 2009
Brotinn oddur af oflæti

Ég, tiltölulega med fulde fem, hef ákveðið að taka aftur til við ljósmyndabloggið.
Hef hent út nánast öllum póstum gömlum, skildi þó listapistlana eftir. Það vantar þó myndir við þá marga, en meinið var nefnilega að bloggspottið, hundspottið að tarna, þurrkaði burtu flestar myndir sem ég var búinn að setja inn. En nú fer þetta í gang aftur, hægt en örugglega, aðallega fyrir sjálfan mig, þó mun ég af hégómaskap segja frá því að ég er byrjaður aftur.
Á myndinni er afinn með Viktor Daða og Heklu Karen rétt fyrir páska.
Tuesday, July 29, 2008
Fuglaskoðun
Þau þurftu mikið að klappa þagnarfuglunum og eftir miklar pælingar sagði Viktor : " Hey þetta er einsog tónlist ". Hann er bara fimm ára en fattaði djókinn, hefur reyndar séð nótnablöð hjá stóra hálfbróður sínum og er nógu skarpur til að tengja.

Viktor var mjög hugsi þegar við komum að spóunum hans Helga Kristnesgoða, en lét engin komment falla, svo fóru þau systkynin bara að tína krækiber.

Monday, June 30, 2008
Blogspot er verra en skoffín
Það er engin leið að finna út hvernig þetta hefur getað átt sér stað. Aðrar síður á Blottspottinu því arna eru bara í góðu lagi ( Populus Panodil hefur til að mynda ekki lent í svona árás ).
Það er sennilega full langsótt að kenna sjónlistarmafíunni um þetta, einsog var þó augljóst þegar ég var að reyna að koma listapistlunum mínum inn hér um árið.
En það er ekki gaman að þessu ef síðan fær ekki að vera í friði.
Verst að mér er farið að finnast þetta svo gaman að setja inn mynd og mynd algjörlega á eigin forsendum og ábyrgðarlaust.
Ég mun því leita leiða til að taka upp þráðinn seinna meir með eiginlegri heimasíðu.
Þangað til verða færslur hér strjálar.
Ég vil helst ekkert hafa með hundspottið Blogspot að gera meir.
Sunday, December 10, 2006
Sextándi Listapistill
List er leikur.Það er mannskepnunni nauðsynlegt að leika sér. List er ákjósanlegur leikur.
Öll leikum við einhverntíma leikinn á okkar hátt, gleymum því ekki að það er líka þátttaka að þiggja.
Það er ekki ráðlegt að spyrja : “ Er þetta list “, en samt er spurningin eðlileg.
Ég held, að þá aðeins sé von á listaverki, að listamaðurinn leiki listaleikinn af þrótti, einlægni og innlifun.
Listsköpun er vissulega einmanalegt starf, en það er þó allténd eitthvað sem listamaður gerir af áhuga. Það fer enginn í listsköpun vegna þess að það bauðst ekkert betra.
Listsköpun getur verið erfið, en það er hjákátlegt af listamönnum að barma sér yfir því á blaðatorgum.
Hroki hentar ekki list, þeir sem gefa sér það að vera frábærir eru fáráðir.
List getur tendrað ást, heift, grátur og gleði og list getur líka hneykslað, en það er unggæðingslegt í meira lagi að ætla sér að hneyksla með listinni.
Listaverk geta vitaskuld vakið allar kenndir tilfinningalitrófsins vegna þess að listsköpun endurspeglar það allt.
Hitt er svo annað mál hvort nokkru sinni er hægt að skilja list til hlýtar. Skilur einhver tilfinningar ?
Pælið í þessu.
Pælið í list.
Fimmtándi Listapistill
List já, æ hvað er það nú eiginlega .- “vitið þér hvað það er mér er það hulið “ (megas)-
En ýmis viðmið verða að vera grunnþættir í listkjörþokka. Til dæmis verður skapari verksins að hafa haft einbeittan vilja til að skapa list, hugmynd sem er einhvers virði ( en það er nú oft með hugmyndir einsog þokuna hvorutveggja vill gufa upp ) og handverkið verður líka að styðja hugmyndina. – Myndlistarmenn fá oft alvöru handverksmenn til að vinna fyrir sig svo handverkið verði við hæfi, en þá þarf hugmyndin líka að vera skotheld.
En listaverk þarf sinn tíma til að snerta þannig sálarlíf margra að listljósið leyni sér ekki. – Með áherslu minni á þátt tímans í því að gera verk að list, á ég ef til vill við að það taki tíma fyrir lærða og leika að sammælast um meðvitund fyrir listaverki. ( Stundum segja allir við fyrstu sýn : “þetta er snilld” og halda því áfram allt til ragnarraka, en það afsannar ekki kenninguna ) -.
Og það er hroki að halda sig hafa svo góðan smekk, að viðkomandi búi yfir hinum eina sanna skilningi á list. Þeir sem halda sig hafa þann skilning skortir víðsýni.
Og sumir vilja vera gagnrýnendur, en það er nú erfiðast ef vel á að vera, gagnrýnandi þarf að vita, þora og geta. Sumir gagnrýnendur eru bara grafarar sem afskrifa án íhygli, aðrir halda að þeir séu vídeóvélar og lýsa bara því sem þeir sáu eða heyrðu, en gagnrýnendur sem geta bent á, skilgreint og leiðbeint hafa ef til vill dágóða innsýn í list.
Saturday, December 09, 2006
Fjórtándi Listapistill
Blindur er bóklaus maður. Basta. Þessi pistill þyrfti ekki að vera lengri.
En eitthvað smálítið ætla ég að fjalla um það mikla bákn bókmenntir. Orðið sjálft á íslenskunni er ekki gagnsætt. Bókmenntir er látið merkja það sama og “ litterature “, sem vísar meira til þess að skrifa. Skrifmenntir væri nær lagi. Ritlist nær þessu nokkuð vel.
En uppruni bókmennta kemur hinsvegar hinu ritaða orði ekki við. Sagnalistin er jafngömul tungumáli. Sögur lifðu í munnmælum ættlið eftir ættlið og ef þær voru góðar lifðu þær jafnvel ættbálka. En sögurnar tóku sífelldum breytingum, því sagnameistarar sniðu vankanta af þeim og þróuðu áfram. Jafnvel eftir að tekið var að festa sögur í kvæði breyttust þær líka í ára-og aldanna rás. En þetta snérist þó um það að segja sögur og segja fréttir, jafnvel færa nýjustu fréttir í kvæði sem voru munntöm.
Sagnirnar lifðu samt áfram í kvæðunum munn fram af munni. En svo fóru þeir sem áttu mikið skinn og blek að láta skrásetja þessar gömlu sögur og ljóð og jafnvel láta eina og eina úr samtímanum fylgja með.
En ritlistin var lengi lengi hin mikla list skrifaranna, þeirra sem kunnu á bókfellið. Það varð þeim keppikefli að hver síða í handriti væri flott. Skrifararnir voru í raun að fást við myndlist. Og bækurnar eftir að þær komu til voru langt fram eftir öldum innbundnar svo með skrauti og gyllingum, að það fór ekki á milli mála að bókagerðarmenn voru að gera eithvað til að gleðja augað. Það eimir enn eftir af þessu, en bókaskreytingar nútímans og kápumyndir sýna einungis sorglega afturför í frágangi bóka.
Allir eru allt í einu að skrifa, en eftir sem áður ákaflega fáir sem skrifa “ Litterature “.
Wednesday, December 06, 2006
Þrettándi Listapistill

Þetta á náttúrlega við um listir sem annað. Í myndlist vill vaða uppi hinn unggæðingslegi hroki, að gamlar aðferðir séu ónýtar. Ritlistarmenn deila um ágæti síns máls. Ljóðið er toppurinn segja þeir sem fást við það. En stóryrtastir allra vilja þó vera tónlistarmenn.
“Tónlistin er göfugust allra lista”, er setning sem fer oft á flug og tónlistarmenn og unnendur telja yrðinguna ekki vera skoðun heldur staðreynd. En tónlist er list nótugæjanna. Alþýðutónlist verður ekki list nema einhvað tónskáldið finni þjóðlag og færi það úr dúr í moll og menn halda ekki vatni.
Ópera mun svo vera langefst í tónlistapýramídanum.
Gamall vinur sagði eitt sinn í mín eyru, að það væri undarlegt með óperusýningar. Boðið væri upp á í flestum tilfellum lélega myndlist (leiktjöld og búningar ), lélegan og oft hjákátlegan leik ( tenór með bumbuna niður á hné sem Rómeó að biðla til Júlíu sópran sem kemst varla fyrir á sviðinu ), en tónlistin og söngurinn og samruni þessa alls gerði þetta að himneskri upplifun.
Tónlist er líka alltumlykjandi einsog myndlistin, svo mætti ég stundum biðja um ÞÖGN. Hvers vegna er fólk svona hrætt við þögnina. Er ekki hægt að tala saman án tónlistar í bakgrunni. Má ekki bregða sér bæjarleið í bílnum án þess að þenja græjurnar. Og hversvegna í ósköpunum er ekki hægt að sýna neitt í bíó eða sjónvarpi án þess að keyra tónlist yfir ? Myndir af myndlistasýningu á sjónvarpsskjánum eru þær óhugsandi án strengjakvartetts ? Þarf landslag synfóníu til þess að við skiljum ? “Já nú sé ég að þetta er sú fimmta og fjall”.
Eða er bara verið að hamra þann boðskap inní undirmeðvitundina að tónlistin sé á toppnum.
Tólfti Listapistill

Myndlist er svo alltumlykjandi, að orðið List táknar í hugum margra Myndlist. Saga Listarinnar fjallar bara um myndlist. Við tölum um bókmenntir og listir, en segjumst samt ekki vera að afneita bókmenntum sem listgrein. Á “móðurtungunni” ensku er Art ( þýtt list ) einungis notað um myndlist, en The Arts eru listir almennt. Listasafnið á Akureyri er ekki gömul stofnun, en fyrir myndlist eingöngu, heitir þó ekki Myndlistasafn. Safnið hefur haft tvo forstöðumenn og það er gaman að hugsa til þess að stór hluti af jómfrúaropnunarræðum þeirra var samhljóða, sem sé undirstrikunin á því að myndlistin væri allsstaðar. Við göngum í myndlist, ökum í myndlist, búum í myndlist, jafnvel minnstu smáatriði lífs okkar væru háð myndlist, klipping og förðun, gleraugu, klukkur, hnífapör og nærbuxur.
Myndlist og tíska eru í eilífum fullnægingarlitlum samförum. Það er heimtað nýtt, nýtt, nýtt, nýtt, nýtt – fjandinn hafi það þótt það nýja sé gamalt – og það er heimtað meira. En svona verður þetta að vera og einstaka sinnum er það nýja spennandi, jafnvel fyrir gamla íhaldssama jálka.
Myndlist er vissulega rígmontin, en það er eðli þeirra sem eru uppá hól að hreykja sér. Og fyrir myndlistina er öll veröldin rými. ( Rými er reyndar hugtak sem myndlistarmenn sérstaklega hafa misnotað svo mjög að . . . . “afsakið meðan að ég æli” .)
En reyndar getum við ekki neitað því, að alheimurinn er ansi verkleg innsetning.
Ellefti Listapistill
Ef Darwin hefði hefði verið listrýnir og ritað um uppruna tegundanna út frá þróun listarinnar, myndi rit hans varla hafa valdið hatrömmum deilum, vegna þess að þó list sé skírt dæmi um endalausa þróun tegundanna dettur fjandakornið engum í hug að hún verði ekki til við sköpun, jafnvel svolítið guðlega svo mjög er listin upphafin.Eitthvað agnarsmátt upphaf er allri listsköpun sögunnar sameiginlegt, einhverskonar pirrandi litningur á sálinni. Við eigum að sjálfsögðu ekki möguleika á að rekja söguna frá upphafi listþróunar þó vissulega sé urmull steingervinga í farveginum, en víst er að einhverntíma í fyrndinni hefur fólkinu ekki fundist nóg að éta eða vera étin, sofa og eðlast. Það þróaði með sér tungumál til að segja frá, einhver fór að humma eða berja einhverju í eitthvað og svo þegar eldurinn var orðinn almenningseign var hægt að maka eitthvað með sóti eða kolaðri spýtu. Listin þarf ekki svo mikið.
En kanski má ekki kalla þessi fyrstu villuráfandi skref listsköpun, því einsog við munum þá varð listhugtakið ekki til fyrr en í Evrópu svo ævintýralega löngu eftir upphafið. Síðan er líka liðinn nokkur tími og fólki hættir til að gleyma að þróunin hafi átt sér upphaf.
Auðvitað á list allt sameiginlegt með annarri þróun tegunda. Útfrá fyrsta listaeinfryminu hafa sprottið margir tegundaflokkar, listgreinar, og sérhver tegund kvíslast í margar ættir, stútfullar af stefnum og flokkum, skapandi og túlkandi. Einsog í þróun dýra og planta hafa listgreinar staðnað á þróunarbrautinni, sumar tegundir dáið út aðrar þróast enn og enginn sér fyrir endann fremur en upphafið.Víst um það að listin á sína krókódíla og risaeðlur. Listin á líka samsvörun við allan þann aragrúa af finkum sem þróast hafa eftir því hvar og hvað þær éta.
Og listin á líka sínar rottur og menn.














