Tuesday, June 23, 2009

Meiri Þagnar-Freyja





Nokkrar myndir með Populus hurð og glugga lokuð

Monday, June 22, 2009

" The Making of " ÞAGNAR-FREYJA

Fátt hef ég hugsað um meir, né starfað að viti við undanfarnar vikur, en Freyju. Frá því ég fékk tilboð um að taka þátt í sýningunni, og ég hafði ákveðið að stækka upp fjórðupartsþögnina mína góðu, vegna augljósra kvenlegra eiginleika hennar og staðsetja hana fyrir framan Populus Tremula, hefur þetta verið virkilega skemmtileg en bakveikjandi vinna ( hugmyndir, sem skipta þó öllu máli, reyna aldrei á bakið ). En nú er Þagnar-Freyja á sínum stað og bara að bíða og sjá hversu vel Akureyrarlýður og utanbæjarfólk fer með hana í sumar.

Hér er svo the making of Þagnar-Freyja, sem gerð er úr krossvið, fyrrum millivegg úr Populus Tremula og gamla rúmbálknum mínum.
Það var sagað, límt, sagað meir, höggvið, pússað með brettaskífu og sandpappír, málað og svo skrúfað fast við gamla Mjólkursamlag KEA.
Gangi þér vel Freyja mín.














Saturday, June 13, 2009

Monday, June 08, 2009

Vor í Vaglaskógi



Ókum í Vaglaskóg í blíðunni í gær með vinnuhópinn.
Skógurinn er jafn flottur og fyrrum og þetta visnaða gulbrúna víkur fyrir því græna.

Thursday, June 04, 2009

Footloose


Má ég kynna : Mr Footloose Tryggvason, svona líka glaðan eftir velheppnaða rokktónleika Sudden Weather Change og Reykjavíkur í Populus Tremula um síðustu helgi.