Tuesday, July 29, 2008

Fuglaskoðun

Við Fróðný renndum fram í Eyjafjarðarsveitsveit á sunnudaginn í fuglaskoðun með börnin.
Þau þurftu mikið að klappa þagnarfuglunum og eftir miklar pælingar sagði Viktor : " Hey þetta er einsog tónlist ". Hann er bara fimm ára en fattaði djókinn, hefur reyndar séð nótnablöð hjá stóra hálfbróður sínum og er nógu skarpur til að tengja.


Viktor var mjög hugsi þegar við komum að spóunum hans Helga Kristnesgoða, en lét engin komment falla, svo fóru þau systkynin bara að tína krækiber.