Wednesday, March 30, 2011

Inni / úti


I gærkvöld á kontórnum.

ennafgamlahandahófinu

Viktor les fyrir Heklu yfir eterinn

Tuesday, March 29, 2011

ímakkstest


og þessi

af handahófi


þessimynd

Thursday, March 24, 2011

Ekki alltof aktívur bloggari


Nei og mér er alveg sama um það, en nú á ég orðið makka og er að verða gráhærður yfir honum, það er í stíl við álið burstaða. Allir þessir fídusar sem maður var farinn að kunna svo vel á PC eru ekki hér, en nýtt lærist smátt og smátt. Gráu hærurnar eru þó komnar til að vera.
Efri myndin er af okkur Fróðnýju á Kanarí og kemur þessari færslu ekkert við. Ég var bara að prófa að komast í kynni við iphoto, sem ég kalla drasl alla vega meðan ég kann ekkert á það.
Neðri myndin er tekin á tölvuna sjálfa og það virðist auðvelt. Sjá má gráu hárin umræddu.

Wednesday, March 09, 2011

Öskudagur-Aukastórnammidagur

Í dag, á öskudag, fá börnin gífurlega úthaldsmikla nammimaga.

Inni í sófa liggja tvær söngþreyttar ninjur með slíðruð sverð, horfa á eitthvað í sjónvarpinu, væntanlega ekki fréttir af handtökum Kaupþingsmanna, og standa sig vel í sælgætinu.

Monday, March 07, 2011

Útum ljórana

Gluggarnir í stigaganginum upp á fjórðu eru gamlir og skáldaðir og raki milli glerja. Það þarf ekki photoshopfilter þegar myndað er í gegnum þá í gær. En örlítið átt við skilleríin í ljósmyndakompunni, einsog sagt er.

Tuesday, March 01, 2011

Ofbeldi Gróft

Svona snjókoma er nú alveg óþarfi. Það er kominn mars, hvernig haldið þið eiginlega að mottan sé með snjórönd efst. Ömurlegt.

þrír gluggar í norður upp á fjórðu