Heiti potturinn á veröndinni var frábær leikvöllur fyrir börn og fullorðin börn vikuna sem við dvöldumst á Héraði. Helga Jóna kom með austur til að vera í afmæli Heklu Karenar ( 25.7., 6 ára prinsessa ) og gisti eina nótt hjá okkur í bústaðnum. Annars voru það bara við hjónakornin og börnin, vindurinn, sólskinið og rigningin.