Monday, November 12, 2012

Viktor Daði á frjálsíþróttamóti

Augasteinninn okkar Fróðnýjar hann Viktor Daði keppti á frjálsíþróttamóti í gær – sunnudaginn 11.11.2012 –. Þar var ólympíuhugsjónin í hávegum höfð. Pizza og djús á eftir.

Sunday, November 04, 2012

HEFLARNIR á Icelandic Airwaves

HEFLARNIR flugu suður miðvikudaginn 31.október 2012 til að spila á Icelandic Airwaves, á þokkalegu rokkbúllunni Amsterdam. Þetta var hinn ljómandi leiðangur þó kuldinn og rokið fyrir sunnan hafi verið í mesta lagi.


og svo var ródað á Amsterdam



og síðan blastað um kvöldið








Sunday, October 07, 2012

“ Fjórir Kátir Bestir “ í Kántríbæ

Trúbadúrarnir Aðalsteinn Svanur, Guðmundur Egill, Guðbrandur Siglaugsson og Kristján Pétur ( Fjórir Kátir Bestir ( Fjórir Ljótir Lestir )) komu í Kántríbæ föstudagskvöldið 5. október 2012, sáu og spiluðu af hjartans list og sungu hver með sýnu nefi.

Tuesday, September 18, 2012

Skuggabaldur ?

Þessi fylgdi mér, ja einsog skugginn, á sólskinsgönguferðunum um nágrenni Reykjalundar.

Sunday, August 26, 2012

Viktor Daði nýklipptur

Fyrir skömmu fór blessaður engillinn minn hann Viktor Daði í klippingu og hafði fengið klippistelpuna til að bregða aðeins á leik. Flottur svona:



Tuesday, August 14, 2012

Á Illugastöðum í Hnjóskadal

Við Fróðný fórum ásamt systkinunum góðu Viktor Daða og Heklu Karen í sumarbústað að Illugastöðum í Hnjóskadal ( nútildags er dalurinn kallaður Fnjóskadalur, en það er bábylja, sem ég hirði ekki um ). Veðrið lék við okkur þessa viku frá 3.-10. ágúst. Og allt andaði kyrrð og friði.
Við vorum bara rétt búin að bera dótið í bústað, er systkinin voru komin í heita pottinn.
2
3

Helga Jóna kom í heimsókn fyrsta kvöldið, þá var að sjálfsögðu farið í pottinn aftur.



10

Það var keppt í Boccía, enginn veit hver vann enda aukaatriði.
11
12
13




18

Mamma ( Sveina amma ) og Birgir bróðir minn komu í heimsókn.



Það var tekinn hringur eða tveir í Krokket.



26
27
Einn daginn ókum við til Húsavíkur og heimsóttum meðal annars Hvalasafnið.

29

30
32

Hekla hitti Guðmund stóra bróður
34

Og alltaf var potturinn góður


38

40





Og við litum við í kaffihúsinu Uglunni