Wednesday, January 26, 2011

Ristur og Fræstur

Menn eru dálítið að láta fljúga sér til hennar Reykjavíkur í einhverjum tilgangi og sumir láta meira að segja fljúga sér til baka aftur. Ég prófaði fyrir viku að fara á börum á sjúkraflugsclass beint á Borgarspítalann. Þar var mjóbak mitt rist upp og sagað ofan af hryggnum, síðan borað, fræst og heflað úr mænugöngunum svo að pláss væri fyrir mænuna ( mænan hafði víst ekki fitnað, en mænugöngin bætt innan á sig svona einsog mittið hefur bætt utaná sig ). Þessi meðferð er til góðs þegar fagmaður framkvæmir hana, ég ráðlegg engum að prófa þetta heima hjá sér. Og nú þarf ég bara að liggja gróandi. Kominn heim í Strandgötuna eftir stutt stopp á Fjórðungssjúkrahúsinu. Fróðný minn miklu betri helmingur festi hluta leiðangursins á digitölur.

Friday, January 14, 2011

Saturday, January 08, 2011

Upp styttir él um síðir

Þetta norðanáhlaup í gær var svosem alveg alvöru, en það snjóaði ekki mikið hér á eyrinni þó fokið hafi í skafla. Myndirnar hér fyrir neðan eru teknar á sömu stöðum og myndirnar í gær, sömuleiðis um hádegisbil.

Í suður :

Suður 2

Í norður :

Og frostið er örlitið meira en í gær :

Norður hiti 2

Friday, January 07, 2011

Útsýni af fjórðu hæðinni, hádegi 7.1.2011

Það er ekki gömlum hundi út sigandi í dag. Norðanhríðarbylur.

Þetta sést út um suðurglugga :

Suður

Í norður er “ útsýnið “ hinsvegar svona :

Norður

Þó má sjá úr eldhúsglugganum að það er ekki verulega kalt :

Norður hiti