Wednesday, March 24, 2010

Nýlegt nýtt líf

Þessi alvörugefni síðunglingur ákvað tiltölulega nýlega að hefja nýtt líf ákaflega svipað því gamla. Eftir sem áður mun hann hafa gaman að alkóhóli, satívu og öðrum lystisemdum lífsins. Ekki munu póletíkusar eiga upp á pallborð hans fremur en fyrr, en héðan í frá má hann hundur heita ef hann mætir til að taka þátt í þeim heimskulega leik sem hálfvitar kalla lýðræði, en er ekkert nema lýðskrum. Þar kom það.

 

Tuesday, March 23, 2010

Döddi snari

Döddi er svo snar í snúningum að hann næst ekki á mynd nema sem skugginn af sjálfum sér svei mér þá.

Monday, March 22, 2010

Matti J

Matthías Jochumsson orti um vort VOLAÐA LAND. Með hjálp FunPhotoBox er hann nú í gegnum brjóstmynd í Lystigarðinum kominn til útlanda.

matti joch 1

matti joch 2

matti joch 3

Wednesday, March 10, 2010

Meistari Mainstone

Í dag fyllir Meistari Mainstone  ( Aðalsteinn Svanur Sigfússon ) fimmtuginn. Hér birtast ef til vill fimm andlit Aðalsteins ( Ain´t stoned ). Til hamingju með daginn, sem og alla aðra daga.

Aðalsteinn 1

Aðalsteinn blautbolur

Aðalsteinn 4

Aðalsteinn 7

Aðalsteinn 9

Tuesday, March 09, 2010

Norðanpiltar í Aðalsteins afmæli Svans

Hljómsveitin Norðanpiltar ( eða er þetta Floorshow ? ) kom saman eftir langt, mjög langt hlé, til að heiðra Aðalstein Svan ( Mainstone ) í fimmtugsafmælisveislu hans 6.3.2010. Það má segja að þetta hafi verið smá æfing fyrir lengra gigg í sumar, en þá fyllir gamli sex tugi. Meira um það síðar.                                                                        Það kom í ljós að við kapparnir: Strákurinn Brandur, Digri KP og  Gamli Jón höfðum litlu gleymt, reyndar ekki bætt neinu við nema grárri hærum, en þetta var gaman. Feilar voru að sönnu fjölmargir en komu ekki að sök fremur en forðum.

Wednesday, March 03, 2010

R.Mutt fékk aldrei listamannalaun

Fountain-R-Mutt-1917-1964

Á trýnisíðu Aðalheiðar Sigríðar Eysteinsdóttur spunnust í gær nokkrar umræður útfrá spurningunni um réttmæti listamannalauna. Ég blandaði mér aðeins í þetta, en sá svo að það myndi mér erfitt, því oftlega var ég alveg sammála fyrri helmingi yrðinga ýmissa álitshafa, en síðan jafn ósammála þeim síðari. En fyrr eða síðar hlýtur spurningin um listamannalaun að fara að snúast um list og hvað hún sé. Áðurnefnd umræða í gær takmarkaðist reyndar mjög við það að þar börðu gjarna myndlistamenn lyklaborð, en myndlistin er skolli frek, hefur til dæmis eignað sér hugtakið ART og á Íslandi er oft talað um LIST og þá átt eingöngu við myndlist. „Menning og listir“ er einmitt máldæmi um þessa, að mínu mati, vitleysu. En myndlistin er líka allt um vefjandi, við búum, göngum, sitjum við, á og í myndlist ef svo má segja. Það er ekki einu sinni hægt að taka viðtal í sjónvarpi við skrifstofublók eða forstjóra án þess að á bak við glytti í veggi fóðraða myndlist. Því er engin furða að fólk ruglist í ríminu.

En R.Mutt fékk aldrei listamannalaun þó hann hafi haft meiri áhrif á listina einsog hún leggur sig en margan grunar eða vill viðurkenna. Með hlandskálargjörningi sínum breytti skapari R.Mutt, franski skákmaðurinn og myndlistarmaðurinn Marcel Duchamp skilningi fólks á hvað list ER og þó einkum og sér í lagi hvað list GETUR VERIÐ. En þar sem Marcel orðaði mér betur þær vangaveltur um list, sem ég hef gert að mínum, læt ég honum eftir, að segja það sem ég hefði meðal annars viljað segja í gær.

„Þjóðfélagið gerir það sem því sýnist. Listamaðurinn skiptir engu máli, því enginn raunverulegur framleiðslugrundvöllur er til fyrir list. Listin byggir alltaf á tveimur andstæðum pólum áhorfanda og skapanda. Neisti af snertingu þeirra elur eitthvað af sér líkt og rafmagn. En það er áhorfandinn sem á síðasta orðið. Það er því ekki listamaðurinn heldur eftirtíminn sem skapar meistaraverkið. En listamaðurinn þarf ekki að gera sér neinar grillur, það kemur honum ekki við.“

Tuesday, March 02, 2010

Monday, March 01, 2010

FunPhotoBox við flensu

Hef hangið heima í kvefpest/flensu. Til að hætta að hugsa bara aumingja ég, er ágætt að þykjast sniðugur með hjálp FunPhotoBox.

Átrömpuð tá frímerki

Fótgangendur 3

Kópavogsbúi á mynd með gellu

KPkjút í rammanum

Wednesday, February 24, 2010

Febrúarvetur

Vetur konungur er aðeins að minna á sig á Akureyri. - Þetta er nú aðallega mont. - En jafnvel snjófælnustu menn, einsog ég, verða að viðurkenna að þetta er býsna fagurt. - Þegar snjóruðningar í Strandgötu verða sem fjöll. - Og svo skín sól á daginn og það myndast þessi göndul grýlukerti í frostinu og maður er mikið feginn að fá  þau ekki í hausinn.-    Þessar myndir voru allar teknar í gær.

Saturday, February 20, 2010

Myndir lítillega lagaðar að kröfum nútímans

Ég hef verið að leika mér í FunPhotoBox, sem er reyndar ómerkilegt netprógramm, til að setja eigin myndir inn á fyrirfram valda bakgrunna ( maður gæti náð sama árangri bara með svolítilli vinnu í photoshop ), en þó má hafa smá gaman að nokkrum möguleikum, sem til dæmis gefa þessar niðurstöður.

KP í rammanum

Fróðný líder 2

Aðalsteinn blautbolur

Monday, February 15, 2010

Snjallir arkitektar

Sumir arkitektar eru snjallir. Það eru þeir sem geta kjaftað sína heimsku kúnna til að láta byggja vitleysu einsog þetta.

Wien_web_house-attac_23193a

og þetta er svipað

Polen_Wikimedia_WS_21045a

og þetta er kúltúrhús í Graz í Austuríki. Arkitektarnir virðast hafa reykt of mikið gras. Við verðum að vona að kúltúrinn innandyra sé skárri en byggingin.

Graz_Watz_WS_21040a

Varla finnst einhverjum þetta flott. Það þyrfti að skipta um heila í þeim sem segði : “Já ég vil búa í svona smart húsi “.

ContainercityLondon__21038a

Já sumir arkitektar eru útsmognir.

Wednesday, February 10, 2010

Kópavogsbúi sefur

Ég var á einhverju randi fram á nótt um síðustu helgi. Frú Fróðný var sofandi þegar ég kom heim og ég undraðist þær háværu hrotur sem ég heyrði úr stofunni. Ég vissi sem var að ég var ekki sofandi í sófanum. En þetta var hrotudýrið.

 

Búinn að æla á stofugólfið og steinsvaf. Nú er kanski ekkert merkilegt að blindfullur eymingi rangli inn um opnar dyr, en ég bý á fjórðu hæð halló. Fyrr má nú rangla. Við kölluðum á lögregluna til að fjarlægja aumingjann. Þrír fílefldir löggumenn mættu og reyndu að vekja þetta, Það tókst ekki nema að hálfu leyti. Þetta stykki hélt sig vera heima hjá sér í Kópavogi. Nú veit ég ekki hvort það er algengt að Kópavogsbúar æli á stofugólfið hjá sér áður en þeir leggjast þar til svefns, en stofan okkar er hreint ekki Kópavogur. Ég var mjög feginn þegar laganna verðir hálfbáru ræfilstuskuna út. Fangaklefi hefur síðan verið hans Kópavogur það sem lifði nætur. Skyldi einhver þekkja þetta eintak, sem finnst gott að búa í Kópavogi ?

Latur er ég bloggmaður

Já ég viðurkenni það alveg hér fyrir sjálfum mér ég er líka latur við myndabloggið. En nú mun ég fara að ráða bót á því. Mun allavega setja eitthvað inn í viku hverri. Og hví ekki að byrja í næsta nágrenni? Fyrir utan húsið okkar í fyrradag.

Friday, December 25, 2009

Jólin 009 norðnorðvestur

Tók tvær myndir af jólasnjónum/jólasnjókomunni jóladaginn í dag. Í norðnorðvestur útum svalahurðina. Fyrrri myndin er tekin 12;24, en sú seinni 12;39. Mikið er gott að geta bara horft á snjóinn vitandi að hvítt sængurlínið er miklu mýkra og langtum hlýrra.

Saturday, October 31, 2009

Fjöll og ský

Við frú Fróðný höfum farið í ófáa bíltúra, jafnvel útá land, þetta árið. Ég er farþeginn og oftar en ekki renni ég niður rúðunni og smelli af myndum af fjöllum og firnindum meðan við ökum framhjá.

Wednesday, October 28, 2009

Börnin í heimsókn

Hekla Karen og Viktor Daði hafa verið í heimsókn á norðurlandinu. Þau skruppu meðal annars til langömmu á Sauðárkróki.

2

Spiluðu við Sveinu ömmu í Eiðsvallagötunni

3

4

Og svo voru eitt kvöldið teknar hárgreiðslumyndir og ein með afa fyrir svefninn.

6

5

1