Wednesday, May 25, 2011
Sunday, May 22, 2011
Sunday, May 08, 2011
Við á Viktorsmynd
Viktor Daði tók þessa mynd af okkur hjónakornunum í Listagilinu í gær. Honum finnst mjög gaman að taka myndir og vídeó, en hirðir ekki mikið um að skoða handverkið.
Sunday, May 01, 2011
Þagnar-Freyja að fara á límingum
Eftir tvo vetur úti í frosti og regni og frosti og regni og frosti og regni og . . . . hefur Þagnar-Freyjan mín, sem stendur vörðinn við Populus Tremula, farið að fara svolítið á límingunum. Ekki skrýtið því hún er gerð úr allskyns timbri með mismunandi þanþol og vatnsheld lím svokölluð eru að minnsta kosti ekki eitt, vatnsheld. En blessunin fær að þrauka unz yfir líkur með Populus. Ef ég væri feministi myndi ég segja að hún væri táknmynd ævarandi kvennakúgunar. En það sagði ég ekki. Þetta er listaverk sem ég ræð ekki lengur yfir, það er í samvinnu við íslensku veðrabrigðin að skapa eitthvað nýtt.