Wednesday, April 20, 2011
Tuesday, April 19, 2011
-40 Húllumhæ í Populus Tremula
Laugardagskvöldið 16.4.2011 var mikið húllumhæ í gilinu. Þá var haldið uppá þann áfanga sem ég næ aðeins einu sinni, að verða 60 ára og still going tiltölulega strong. Það var etið og drukkið ( mikið margir ) , tjúttað, twistað, sjeikað, rokkað og rúllað á rósum.
Ég vil þakka Fróðnýju konu minni og stjúpdætrum fyrir alla hjálpina við að undirbúa þessa veislu. Svo og þakka ég öllum fyrir komuna og góða skapið og gjafirnar. Veislustjóra, hljómlistamönnum og ræðumanni fæ ég seint fullþakkað skemmtunina.
Þetta eru nokkrar myndir úr gleðskapnum og ennþá fleiri finnast hérna.
Sunday, April 17, 2011
Monday, April 11, 2011
Unglingsárinn á síðasta skeiði
Já mér tókst það er - 40 í dag.
Börnin sungu afmælissönginn með lokaerindinu : "Hann verður gamall og grár eftir 19 ár". Það er nægur tími.
Samt verður maður að viðurkenna að þegar farið er að leggja mann á skurðarborð og gera við mann er maður sennilega kominn á síðunglingsárin.
En ég kýs að kalla það að unglingsárinn sé að leggja upp laupana.
Sunday, April 10, 2011
Viktor Daði og Hekla Karen með fánann fíflanna
“Íslenski fáninn ameríski bjáninn” sungu börnin og hlógu og hlupu með fánann fíflanna í blíðunni í dag.
Fleiri myndir af þessu hlaupi má sjá hér
Friday, April 08, 2011
Thursday, April 07, 2011
Æfing
Viðbrigði
sit í stól inni í stofu með makkann á vinstra læri og stólarminum og bob marley rastamannar sig í forblöffende hljóðgæðum miðað við að á þeim litla sjést ekki í neina hátalara hljóðið lekur bara si svona uppúr lyklaborðinu og maður er hálfhræddur við merja það með áslættinum en ég hugsa hvílík viðbrigði það eru að hafa þetta svona
Wednesday, April 06, 2011
Tuesday, April 05, 2011
Monday, April 04, 2011
Sunday, April 03, 2011
Saturday, April 02, 2011
Friday, April 01, 2011
Subscribe to:
Posts (Atom)