Wednesday, April 11, 2012

Tuesday, April 10, 2012

Þagnar-Freyja 31.3.2012


Blessuð Þagnar-Freyja er svolítið farin að láta á sjá eftir þrjá íslenska vetur.


Friday, February 24, 2012

Skrokkabandið


minni á Skrokkabandið í Populus Tremula á skírdag fimmtudaginn fimmta apríl

Monday, February 06, 2012

Sunnudagur til sælu

Góður dagur í gær. Útsýnið af fjórðu hæðinni var fagurt sem vonlegt er um klukkan 10.

Eftir hádegið gekk ég til fundar við Populusfélaga tvo í Menningartunnunni Hofi, á leiðinni virti ég fyrir mér menjar um fyrstu flugbryggju á Íslandi.

Að vonum lá vel á Populussveinunum knáu Aðalsteini og Guðmundi.

Fyrst maður var í Menningartunnunni var tilvalið að bregða sér á frábæra píanótónleika með virtúósnum Víkingi Heiðari, sem flutti með meiru í fyrsta sinn Tindrandi píanóljóð eftir okkar mann Jón Hlöðver. Í hressilegustu köflunum í Liebestod Wagners var sem Víkingur væri kominn með flygilinn á loft svo nálgaðist rokksjów.

Monday, January 23, 2012

Tónleikar á ObLaDí 20.1.2012

Við fórum suður í helgarferð og ég notaði tækifærið til að spila hjá Desmond og Mollí Jones á bítlabarnum ObLaDí ObLaDa. Með mér stigu á svið Böggi og Lísa ( Söngtríóið Sólarblómið ) og Haraldur Davíðsson ( Hið Aðallega Skrokkaband ). Þetta var hin besta skemmtun takk fyrir.

Obladí er við Frakkastíg, þar var áður strípibúllan Las Vegas og enn áður Tveir Vinir þar sem Hún Andar spilaði einu sinni, en það er allt önnur saga.

Að afloknum mínum einmenningi bar ekki á öðru en að við frú Fróðný værum kát.

Þá stigu á svið Böggi og Lísa og ég kom inná í Rokk er Betra

Og að lokum Skrokkabandið eftir ó svo langt hlé.

Minn gamli vinur Gestur Guðmundsson dúkkaði upp, einhversstaðar á hann mynd einsog Dorian Grey.

Myndirnar tókum við Fróðný og Hulda Hrönn. TAKK fyrir komuna.

Wednesday, January 04, 2012

Glitský


Ég tók líka mynd af glitskýjunum um daginn. Finnst samt dökki skýhnorðrinn fyrir framan dýrðina alveg jafn flottur.

Tuesday, January 03, 2012

Áramótaáheit


Ég mun glápa í skýin

Wednesday, December 28, 2011

Rottan á Ráðhústorginu

Það er rotta á Ráðhústorgi að ráðast á jólatré
og er nema von að ég orgi og alllítið finnist það spé.
Því rottan og Ráðhústorgið þett´ er raunalega ljótt
og trénu best væri borgið
á báli sem lýsti upp nótt.


Saturday, November 12, 2011

Þagnarfuglar í búri

Dekkað borð í Populus Tremula


Minni meðlimi á yfirvofandi aðalfund

populus


stefni að myndasyrpu um utandagskrár atriði í Populus Tremula