Friday, September 04, 2009
Sunday, August 30, 2009
Rokk er betra en handsal
Þessa mynd tók Fróðný, minn miklu betri helmingur, eftir Miðnæturtónleika í Populus Tremula, af okkur Hallgrími Ingólfssyni handsala það, að við lag mitt “Rokk er betra” verði gerð karlakórsútsetning og hún flutt við tækifæri.
Wednesday, August 26, 2009
Tuesday, August 25, 2009
Sunnudags-menningar-bíltúr
Ég hef ekki smellt neinu hér inn lengi, latur. Hinsvegar fórum við frú Fróðný í bíltúr með menningarlegu ívafi síðastliðinn sunnudag. Byrjuðum á stórgóðri sýningu Maj Hasager í Populus Tremula sjá.
Þagnar-Freyjan mín hefur ekki látið mikið á sjá í sumar, helst að heimskir húsmálarar hafi ýrt á hana smávegis hvítu.
Næst var það Listasafnið með kreppumálarana. Þar var margt flott skilleríið og saltfiskur.
Síðan var haldið gegnum Kjarna fram á flugvöll, þar eru Freyjur, sem tolldu ekki á mynd, en þetta landslag er í leiðinni.
Segir ekki meir af sunnudeginum þeim
Wednesday, August 05, 2009
Krónprinsinn klifrar smá
Viktor Daði var í heimsókn og við smíðuðum aðeins á vinnustofunni. Þegar við fórum aftur upp á fjórðu prílaði sá stutti smá og bað um myndatöku. Ég sagði að amma hans mætti ekki sjá myndina því hún vildi ekki að hann væri að klifra. Set myndina því á netið.
Wednesday, July 29, 2009
Súld og Rigning
Það var súld og rigning á Akureyri í gær. Þó ekki súld og bræla, sem ég held að fari ekki saman skilji ég hugtökin rétt.
Kl 7.
Monday, July 27, 2009
Thursday, July 16, 2009
Spjallað við Rauðuþögn
Wednesday, July 15, 2009
Fróðný og Rauðaþögn við Giljareiti
Monday, July 13, 2009
Rauðuþagnarljósmyndari ljósmyndaður
Þess ber að geta að ef til vill náðust ein eða tvær góðar myndir í þessari "sessíon" þó ekki séu aðfarirnar mjög fagmannlegar.



Sunday, July 12, 2009
Önnur heimsókn á vinnustofuna
Krónprinsinn Viktor Daði hefur verið í heimsókn hjá ömmuogafa um helgina, en fer og út á land í dag, með mömmu sinni í Vatnsdalinn.Viktor leit við á vinnustofunni til að pússa spýtu sem hann hafði tálgað til í sveitinni. Hann segir það vera skítlétt að tálga en svolítið erfitt að pússa.
Það er þetta með þolinmæðina.
Heimsókn á vinnustofuna
Thursday, July 09, 2009
Flogið norður
Wednesday, July 08, 2009
Tuesday, July 07, 2009
Morgnar í Ásabyggð 37 við Flúðir 26.6.-3.7. 009
Ég tók mynd af útsýninu í norðvestur af veröndinni þegar við komum og svo á hverjum morgni þegar ég var búinn að pissa.
Föstudagur 20.6. kl. 13;50

Laugardagur 27.6. kl. 06;48

Sunnudagur 28.6. kl 05;01

Mánudagur 29.6. kl. 06;19

Þriðjudagur 30.6. kl. 07;01

Miðvikudagur 1.7. kl. 09;34

Fimmtudagur 2.7. kl. 09;49

Föstudagur 3.7. kl. 07;43
Tuesday, June 23, 2009
Monday, June 22, 2009
" The Making of " ÞAGNAR-FREYJA
Hér er svo the making of Þagnar-Freyja, sem gerð er úr krossvið, fyrrum millivegg úr Populus Tremula og gamla rúmbálknum mínum.Það var sagað, límt, sagað meir, höggvið, pússað með brettaskífu og sandpappír, málað og svo skrúfað fast við gamla Mjólkursamlag KEA.
Gangi þér vel Freyja mín.

























